
Húseining ehf.
Húseining ehf byggir á Twin Wall, tveggja þátta húseiningakerfi sem hefur verið á byggingamarkaði síðan 2003.
Byggð hafa verið yfir 170 hús á Íslandi, og eru húsin rómuð fyrir styrkleika og góða hönnun.
Lofthæð húsanna er 2,8 metrar sem fallið hefur vel í kaupendur. Áhersla er lögð á skamman byggingatíma en þó þannig að það komi ekki niður á gæðum húsanna.
Til að tryggja faglega gæðastýringu við hönnun húsanna, fengum við til liðs við okkur þá Kristinn Ragnarsson arkitekt og Emil Þór Guðmundsson byggingatæknifræðing.
Vel gekk að samræma þann kostnað sem fólst í innkaupastefnu fyrirtækisins m.t.t. gæða aðfanga, og þess lykilatriðis að halda verði til viðskiptavina sem hagkvæmustu.
Það leystum við með því að sérhanna framleiðsluferla fyrirtækisins með það að markmiði að lágmarka kostnað.
Núverandi eigendur hafa nú sett upp nýja og endurbætta verksmiðju að Hraunholti 1 í Vogum.
Í verksmiðjunni er framúrskarandi aðstaða, þar sem hægt er að framleiða og fullklára allt að 100m2 hús og afgreiða það í heilu lagi á flutningavagn inn í verksmiðjunni, þessi aðstaða lækkar framleiðslukostnað og eykur gæði húsanna.
OKKAR ÞJÓNUSTU MARKMIÐ ERU:
Standa við gerða samninga
Hafa virðingu að leiðarljósi
Vinna viðskiptavininum ávallt til hagsbóta
Verð og gæði í fyrirrúmi
Almenn umsókn
Byggingarvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af byggingarvinnu nauðsynleg
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við framleiðslu á timburhúsum
Auglýsing birt3. júní 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hraunholt 1, 190 Vogar
Starfstegund
Hæfni
HandlagniSmíðar
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali

Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali

Sjúkraliði á göngudeild 10E Hringbraut
Landspítali

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á hjarta- og æðaþræðingastofu
Landspítali

Starfsmaður í skipaafgreiðslu á Reyðarfirði
Eimskip

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur