

Áhugaverð tæknistörf við framkvæmdir á Austursvæði
Við leitum að nýjum liðsmönnum í teymi svæðismiðstöðvar Vegagerðarinnar á Reyðarfirði. Teymin hafa annars vegar umsjón og eftirlit með þjónustu á vegakerfinu og hins vegar með viðhaldi og framkvæmdum í vegagerð. Störfin fela í sér ferðalög og þurfa umsækjendur að vera tilbúnir til að sinna verkefnum á öllu Austursvæði. Austursvæði nær frá Vopnafirði, um Möðrudalsöræfi og Fljótsdalshérað, suður með Austfjörðum um Hornafjörð og vestur fyrir Gígju á Skeiðarársandi.
Þjónustudeild hefur umsjón með verkefnum sem flokkast undir þjónustu á vegum, þ.m.t. landsvegum og jarðgöngum á svæðinu. Viðhald malarvega, efnisvinnsla, rekstur þjónustustöðvar í Fellbæ, Reyðarfirði og Höfn.
- Undirbúningur, áætlanagerð og umsjón vegna þjónustuverka og viðhald malarvega
- Verðkannanir / útboðs- og verklýsingar
- Kostnaðareftirlit
Umsjónardeild hefur umsjón og eftirlit með þeim framkvæmdum sem tilheyra svæðinu ásamt viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingar og endurbætur ásamt efnisvinnslu.
- Umsjón og eftirlit með nýframkvæmdum og viðhaldi vega
- Rýni útboðsgagna í nýframkvæmdum
- Skýrslugerð tengd framkvæmdum og viðhaldi
- Mælingar tengdar framkvæmdum og undirbúningi verka
- Háskólamenntun eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Verk- eða tæknimenntun æskileg
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hópi
- Góðir samstarfshæfileikar og þjónustulund
- Gott vald á íslensku
- Öryggisvitund
Íslenska










