Distica
Distica
Distica

Afgreiðslustjóri

Ert þú jákvæður og drífandi einstaklingur með góða samskiptahæfni?


Við leitum að öflugum afgreiðslustjóra í viðbótarmerkingum sem verður lykilaðili í daglegum verkefnum deildarinnar. Starfið hentar einstaklingi sem er skipulagður, lausnamiðaður, góður í samskiptum og hefur áhuga á að taka virkan þátt í að þróa vinnulag, starfsumhverfi og teymið áfram.

      Helstu verkefni og ábyrgð
      • Styðja við og halda utan um daglegan rekstur Viðbótamerkinga
      • Skipuleggja og forgangsraða verkefnum og tryggja góða nýtingu mannafla og búnaðar
      • Fylgjast með framvindu verkefna, afköstum og lykilmælikvörðum
      • Tryggja að verklagi og gæðakröfum sé fylgt og taka þátt í eftirfylgni frávika
      • Leiðbeina starfsfólki og styðja það í daglegum verkefnum
      • Stuðla að góðum starfsanda, vellíðan og öryggi á vinnusvæðinu
      • Halda utan um upplýsingafundi og tryggja gott upplýsingaflæði
      • Taka þátt í móttöku, þjálfun og aðlögun nýs starfsfólks
      • Halda utan um viðveruskráningu í samstarfi við stjórnanda
      • Þátttaka í umbótaverkefnum og bestun á verklagi
      Menntunar- og hæfniskröfur
      • Jákvætt hugarfar og vilji til að leggja sitt af mörkum til góðs starfsanda
      • Skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum
      • Góð færni í samskiptum og samvinnu
      • Lausnamiðað hugarfar, frumkvæði og drifkraftur
      • Hæfni til að leiðbeina, hvetja og styðja samstarfsfólk
      • Nákvæmni og góð eftirfylgni verkefna
      • Áhugi á umbótum og þróun vinnulags
      • Góð íslenskukunnátta skilyrði
      Auglýsing birt27. október 2026
      Umsóknarfrestur6. nóvember 2026
      Tungumálahæfni
      ÍslenskaÍslenska
      Nauðsyn
      Mjög góð
      Staðsetning
      Hörgatún 2, 210 Garðabær
      Starfstegund
      Hæfni
      PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
      Starfsgreinar
      Starfsmerkingar