
Lykillausnir
Lykillausnir/Verkfæralausnir eru verslun með glugga- og hurðabúnað, öryggisvörur og verkfæri í eigu Véla og verkfæra ehf. Verslunin hefur verið starfrækt síðan í desember 2019 en er rekin þétt við hlið Véla og verkfæra sem er 100 ára gamalt fyrirtæki.

Afgreiðslu- og sölustarf
Lykillausnir/Verkfæralausnir leita að nýjum starfsmanni í verslunarteymið. Vinnutími er 10-18 mánudaga til fimmtudaga, 10-17 á föstudögum og tilfallandi á laugardögum klukkan 11-15. Um framtíðarstarf er að ræða.
Leitað er að sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi með ríka þjónustulund.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um fjölbreytt verslunarstarf er að ræða þar sem 6 manna teymi í Lykillausnum vinnur þétt saman við ráðgjöf til viðskiptavina, sölu og afgreiðslu á vörum, áfyllingar í hillur og aðstoð við lyklasmíði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Góð tölvukunnátta og áhugi á tækni
- Reynsla af afgreiðslustarfi er kostur
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Geta til að vinna sjálfstætt og skipulega undir álagi
- Jákvæðni og gott viðmót
- Íslenskukunnátta er skilyrði. Icelandic speaking only
Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 1e, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaÁreiðanleikiFagmennskaHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMicrosoft Dynamics 365 Business CentralMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft WordSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSnyrtimennskaSölumennskaTeymisvinnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Við leitum að starfsfólki í dagvinnu á virkum dögum
Nings

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölufulltrúi - BYKO Akureyri
Byko

Hlutastarf í Ríteil
Reteil ehf.

Fullt starf í Ríteil
Reteil ehf.

Flugstöð - Hlutastarf. Vaktavinna
Penninn Eymundsson

Vaktstjóri í Bónus
Bónus

Starfsmaður í félagsstarfi eldri borgara
Suðurnesjabær

Húðvöruráðgjafi í verslun Blue Lagoon Skin Science - Skincare Consultant
Blue Lagoon Skin Science

Þjónustufulltrúi óskast hjá Ormsson Akureyri
Ormsson ehf

Starfskraftur í matvöruverslun
Plúsmarkaður