Blue Lagoon Skin Science
Blue Lagoon Skin Science
Blue Lagoon Skin Science

Húðvöruráðgjafi í verslun Blue Lagoon Skin Science - Skincare Consultant

Blue Lagoon Skin Science leitar að jákvæðum og þjónustuliprum húðvöruráðgjafa til starfa í verslun okkar á Laugavegi. Húðvöruráðgjafi gegnir lykilhlutverki í að styrkja upplifun viðskiptavina af Blue Lagoon Skin Science. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á húðumhirðu, sölumennsku, framúrskarandi þjónustu og mannlegum samskiptum.

Helstu verkefni

  • Sala og persónuleg ráðgjöf til viðskiptavina

  • Húðráðgjöf og kynning á vörum Blue Lagoon Skin Science

  • Að aðstoða viðskiptavini við að velja vörur sem henta þeirra þörfum

  • Þátttaka í daglegum rekstri verslunar

  • Að tryggja faglega, hlýja og aðlaðandi upplifun í versluninni

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi hæfni í sölu og þjónustu

  • Áhugi á húðumhirðu, húðvörum og vörum byggðum á vísindum

  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og rík þjónustulund

  • Fagleg, fáguð og hlý nálgun í samskiptum

  • Áreiðanleiki, stundvísi og sveigjanleiki

  • Ábyrgð, nákvæmni og sjálfstæði í starfi

  • Reynsla úr verslun, spa, snyrtistofu, apóteki eða sambærilegri þjónustu er kostur

  • Mjög góð enskukunnátta er skilyrði; önnur tungumálakunnátta er kostur

Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri

Um 75–100% starf er að ræða og starfið er unnið samkvæmt vaktaplani.

Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2026.

Starfsfólk Blue Lagoon Skin Science nýtur ýmissa fríðinda í starfi, þar á meðal aðgangs að Bláa Lóninu, afslátta af vörum og þjónustu félagsins auk reglulegra tilboða hjá samstarfsaðilum okkar.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Blue Lagoon Skin Science er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun, nýsköpun og einstaka upplifun viðskiptavina. Með framúrskarandi samvinnu sköpum við faglegt og hlýlegt umhverfi fyrir bæði viðskiptavini og samstarfsfólk.

__________________________________________________________________________________________________

Blue Lagoon Skin Science is looking for a positive and service-oriented skincare consultant to join our store on Laugavegur in Reykjavík. The skincare consultant plays a key role in strengthening customer experience at Blue Lagoon Skin Science. We are looking for someone with a genuine passion for skincare, sales excellent service, and engaging customer interaction.

Key responsibilities

  • Sales and personalized customer consultation

  • Introducing customers to Blue Lagoon Skin Science products

  • Helping customers choose products suited to their individual needs

  • Supporting the daily operations of the store

  • Ensuring a professional, warm, and welcoming in-store experience

Qualifications

  • Excellent sales and customer service skills

  • Interest in skincare, skincare products, and science-backed beauty

  • Strong communication and collaboration skills

  • Positive attitude, initiative, and a strong service mindset

  • Professional, polished, and warm approach to customer interactions

  • Reliability, punctuality, and flexibility

  • Responsibility, attention to detail, and the ability to work independently

  • Experience from retail, spa, beauty salon, pharmacy, or similar service environment is an advantage

  • Excellent English skills are required; additional language skills are an advantage

  • Applicants should preferably be at least 20 years of age

This is a 75–100% position based on a shift schedule.

We are accepting applications until September 6, 2026.

Blue Lagoon Skin Science employees enjoy various benefits, including access to the Blue Lagoon, discounts on the company’s products and services, and regular offers from our partners.

We encourage all genders to apply. Blue Lagoon Skin Science is a dynamic, enjoyable, and diverse workplace where the focus is on continuous development, innovation, and creating memorable customer experiences. Through strong teamwork, we create a professional and welcoming environment for both customers and colleagues.

Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur6. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugavegur 15, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar