
Lyfjaver
Lyfjaver er leiðandi í lágu lyfjaverði og hefur síðan 2005 oftast mælst með lægsta verðið í verðkönnunum ASÍ og fleiri aðila. Með öflugum samhliða innflutningi lyfja og með því að nota ávallt nýjustu og bestu tækni hefur okkur tekist að standa vörð um lágt lyfjaverð til neytenda. Það er stefna Lyfjavers að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt upp á ódýrustu lyfin á markaðnum á hverjum tíma.
Auk apóteksins á Suðurlandsbraut 22 rekur Lyfjaver heilsuvöruverslunina Heilsuver sem býður upp á mikið úrval af vítamín-og bætiefnum, vegan vörum, ilmkjarnaolíum, hreinlætisvörum, matvörum og öðrum heilsutengdum vörum. Lyfjaver rekur einnig heildverslun sem selur lyf til aðila sem heimild hafa til að versla lyf í heildsölu.
Hjá Lyfjaveri starfar stór og góður hópur reynslumikilla starfsmanna í fjölbreyttum störfum. Fjöldi lyfjafræðinga og lyfjatækna starfar hjá fyrirtækinu ásamt mörgum sérþjálfuðum starfsmönnum sem sinna verkefnum í lyfjaskömmtun, apóteki, Heilsuveri og heildsölu.
Lyfjaver er sjálfstætt fyrirtæki í samkeppni við önnur apótek og heilsubúðir á markaðnum og er ekki hluti af keðju lyfjaverslana.

Afgreiðsla og ráðgjöf
Lyfjaver óskar eftir þjónustulunduðum aðila til starfa við afgreiðslu og ráðgjöf í apótekinu að Suðurlandsbraut 22. Óskað er eftir einstaklingi í framtíðarstarf til að sinna fjölbreyttum verkefnum í þjónustu og afgreiðslu.
Unnið er á virkum dögum en vinna á laugardögum getur einnig komið til greina. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðslu- og þjónustustörf
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Áfyllingar og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla í apóteki er kostur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum er kostur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt20. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFagmennskaHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiSamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Sölumaður til verktaka, arkitekta og fagmanna
Harðviðarval ehf

Sölumaður hjá Krafti
Kraftur hf.

Icelandic Speaking Support Associate
Wolt

Er AIR Smáralind að leita að þér?
S4S - AIR

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Íþróttamiðstöðin Varmá leitar að öflugu starfsfólki– dagvinna og hlutastörf
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Starfsmaður í grænmetisdeild - Krónan Vestmannaeyjar
Krónan

Fullnægjandi hlutastarf hjá Blush Reykjavík/Akureyri
Blush

Helgar og aukavinna í Curvy
Curvy verslun

Starfsfólk í Garðaland - Fullt starf
BAUHAUS slhf.

Söluráðgjafi með tæknilega innsýn óskast - Frumkvæði og þjónustulund
NTI ehf. (NTI á Íslandi)