
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Varmárlaug býður upp á sundlaug, barnalaug, sauna, vatnsgufu, infrarauðan klefa, tvo heita potta, þar af annar með nuddi, og leiktæki fyrir börnin. Líkamsræktarstöðin Elding er með líkamsræktarstöð í húsinu, og býr yfir fullbúnum tækjasal, leikfimisal o.fl.
Íþróttamiðstöðin Lágafell er með góða aðstöðu fyrir íþróttir og leiki. Þar er íþróttasalur með löglegum körfuboltavelli, hvíldarherbergi, nuddherbergi, eimbað og saunaklefi ásamt tilheyrandi búnings- og hreinlætisaðstöðu. Lágafellslaug býður upp á 25m keppnislaug, innisundlaug, barnalaug og vaðlaug auk þriggja vatnsrennibrauta. Þar eru einning tveir heitir pottar, nuddpottur og kaldur pottur. World Class er með líkamsræktarstöð í húsinu.

Íþróttamiðstöðin Varmá leitar að öflugu starfsfólki– dagvinna og hlutastörf
Íþróttamiðstöðin Varmá óskar eftir
- Öflugri konu til starfa í 90–100% dagvinnu frá kl. 06:30–15:00.
- Öflugum karli til starfa í 50% starfi frá kl. 08:00–12:00.
- Öflugum karli til starfa í 50% starfi frá kl. 06:30–15:00
Um er að ræða fjölbreytt starf í lifandi umhverfi þar sem góð þjónusta, öryggi og snyrtimennska eru í fyrirrúmi.
Við leitum að ábyrgum og jákvæðum starfsmanni til starfa við klefagæslu og þrif.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í lok ágúst - 1.september. 2026
Athugið: Þar sem störfin fela í sér klefavörslu í kynjaskiptum klefum er óskað eftir kvenkyns umsækjanda í starf við kvennaklefa og karlkyns umsækjendum í störf við karlaklefa, í samræmi við eðli starfsins og reglur um friðhelgi og öryggi gesta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Klefagæsla fyrir grunnskólabörn sem sækja sund- og íþróttakennslu.
- Að tryggja góða umgengni, öryggi og skipulag í klefum.
- Leiðbeina börnum eftir þörfum og stuðla að jákvæðu og öruggu umhverfi.
- Almenn þrif og frágangur á klefum og öðrum svæðum eftir þörfum.
- Þjónusta við viðskiptavini, nemendur, kennara, íþróttaiðkendur og þjálfara þeirra
- Bað – og sundlaugavarsla
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Krafa er gerð um gilt hæfnispróf sundstaða skv. reglugerð um öryggi á sundstöðum Boðið er upp á námskeið fyrir alla starfsmenn við upphaf ráðningar
- Viðkomandi þarf að vera jákvæður, með mjög góða samskiptahæfileika og ríka þjónustulund
- Reynsla af því að vinna með börnum og unglingum er mjög mikilvæg (leikskóli, grunnskóli, íþróttaþjálfun)
- Hæfni til þess að vinna á uppbyggilegan hátt í teymi er mikilvæg
- Þekking og reynsla af skyndihjálp er mikilvæg
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður er mikilvægt
- Samviskusemi og stundvísi er skilyrði
Auglýsing birt18. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skólabraut 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Fullnægjandi hlutastarf hjá Blush Reykjavík/Akureyri
Blush

Starfsfólk í Garðaland - Fullt starf
BAUHAUS slhf.

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Lagerstarfsmaður
Kappahl

Starfsmaður í kjötborð & eldhús
Melabúðin

Verslunarstjóri Huppu Hafnarfirði
Ísbúð Huppu

Sölu- og þjónustustarf í tískuvöruverslun Curvy
Curvy verslun

Sölufulltrúar óskast í fyrirhugaða verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Álftanesskóli - mötuneyti
Skólamatur

Lyfja Setbergi - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Verslunarstjórar - Öflugir leiðtogar - Höfuðborgarsvæðið
Ísbúð Huppu