Kóraskóli
Kóraskóli
Kóraskóli

Aðstoðarskólastjóri Kóraskóla

Leitað er að aðstoðarskólastjóri í Kóraskóla sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, vilja til að þróa framsækið skólastarf, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Leitað er að faglegum leiðtoga sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja framsækið skólastarf í samvinnu við aðra stjórnendur, starfsfólk, foreldra og nemendur. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og ber ábyrgð á og stjórnar daglegu starfi skólans.Um 100% ótímabundið starf er að ræða.

Kóraskóli er nýr skóli við Vallakór í Kópavogi sem tók til starfa haustið 2023. Í skólanum eru um 280 nemendur í 8. – 10. bekk og um 30 starfsmenn. Skólinn var áður unglingastig Hörðuvallaskóla sem hefur nú verið skipt upp í tvo sjálfstæða skóla. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Í námi og kennslu er rík áhersla lögð á einstaklingsmiðun náms, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, verkefnamiðað nám, samþætt þemanám, teymiskennslu og samkennslu.

Um er að ræða spennandi starf fyrir framsækinn einstakling sem vill leiða uppbyggingu og mótun skólastarfs, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Faglegur leiðtogi við framkvæmd skólastarfs og við innleiðingu á nýbreytni og/eða þróunarverkefnum og stýrir samþættu þemanámi.
•    Ábyrgð á daglegu starfi og vinna að öflugu samstarfi og teymisvinnu innan skólasamfélagsins.
•    Heldur utanum skólanámskrárvinnu og starfsáætlun.
•    Ber ábyrgð á móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
•    Vinna að stefnumótun og áætlanagerð í samráði við skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði.
•    Framhaldsmenntun (MA, M.Ed, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar, uppeldis- og menntunarfræða eða sambærilegra greina er skilyrði.
•    Reynsla af stjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í grunnskólastarfi er skilyrði.
•    Þekking og reynsla af skólanámskrárvinnu og gerð starfsáætlunar.
•    Þekking og reynsla af teymiskennslu, leiðsagnarnámi og þematengdu þverfaglegu námi.
•    Góð þekking og reynsla af móttöku á nýju starfsfólki og faglegri leiðsögn.
•    Góð þekking á upplýsingatækni og notkunar rafrænna miðla í skólastarfi.
•    Metnaður í starfi, sjálfstæði, drifkraftur og brennandi áhugi fyrir skólaþróun.
•    Leiðtogahæfileikar, samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær sundkort að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt21. maí 2024
Umsóknarfrestur4. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vallarkór 12
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar