
Skólamötuneyti á Egilsstöðum
Skólamötuneytið á Egilsstöðum sér um hádegisverð fyrir fimm skóla á Héraði.

Aðstoðarmatráður í skólamötuneyti 56% starf - tímabundin ráðning
Skólamötuneytið á Egilsstöðum auglýsir eftir aðstoðarmatráð í 56% afleysingarstarf í dagvinnu. Unnið er alla virka daga frá kl. 10:00-14:00 (4 klst á dag). Starfið er laust nú þegar og verður ráðið út maí 2027.
Skólamötuneytið á Egilsstöðum sér um hádegisverð fyrir fimm skóla á Héraði.
Næsti yfirmaður er forstöðukona skólamötuneytisins.
Starfið var upphaflega auglýst 14.9 2026 með umsóknarfrest til 28.9 2026 en ákveðið var að framlengja umsóknarfrestinn um tvær vikur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfar í mötuneytinu á Egilsstöðum, tekur á móti vörum og gengur frá þeim
- Undirbýr hádegismat m.a. skera niður ávexti, grænmeti og annað meðlæti í samráði við annað starfsfólk
- Aðstoðar við matseld og bakstur þegar þarf
- Sér um frágang, uppvask og þrif
- Annast daglega ræstingu eldhúss
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á fæði og næringu leik- og grunnskólabarna
- Þekking og reynsla af störfum í eldhúsi eða mötuneyti
- Krafa er um hæfni á þann búnað sem nauðsynlegur er vegna starfsins
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi
- Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt12. október 2026
Umsóknarfrestur26. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnarlönd 11, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
EldhússtörfFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniLíkamlegt hreystiReyklausSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaTóbakslausÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Yndisauki leitar að kokki! / Yndisauki is looking for a chef!
Yndisauki ehf

Looking for a chef at Mathús Garðbæjar full time and part time
Mathús Garðabæjar

Liðsauki í veitingadeild á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Aðstoðarfólk í eldhús - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Samlokumeistari Subway Akureyri
Subway

Starfsmaður í þrif í veitingasal IKEA
IKEA

Keiluhöllin - Skemmtileg störf í boði, í skemmtilegu umhverfi!
Keiluhöllin Egilshöll

Viltu grilla með okkur?
Hagavagninn

Samlokumeistari Subway
Subway