

Vaktstjóri – KEF Restaurant
Langar þig að leiða teymi, taka ábyrgð og hafa áhrif á upplifun gesta?
KEF Restaurant á Hotel Keflavík leitar að öflugum og jákvæðum vaktstjóra í metnaðarfullt og skemmtilegt teymi.
Um 100% starf er að ræða.
Unnið er í vaktavinnu, bæði dag- og kvöldvaktir. Vaktir geta verið á virkum dögum og um helgar.
Við leitum að einstaklingi sem hefur mikla reynslu af þjónustu, brennandi áhuga á gestaupplifun og metnað fyrir sölu.
Við viljum skapa upplifun sem gestir muna eftir – með góðri nærveru, faglegri þjónustu, þekkingu á mat og vínum og auga fyrir tækifærum til að gera upplifunina enn betri.
Sem vaktstjóri ert þú fyrirmynd á gólfinu og leiðir teymið í því að veita framúrskarandi þjónustu, skapa sölu og tryggja að hver gestur upplifi góða þjónustu frá upphafi til enda heimsóknar.
Við leitum að manneskju sem:
-
Hefur reynslu af þjónustustörfum á veitingastað
-
Hefur mikinn áhuga og helst góða þekkingu á mat og vínum
-
Elskar að veita góða þjónustu og hefur gaman af samskiptum við gesti
-
Er skipulögð/aður og hefur auga fyrir smáatriðum
-
Hefur áhuga á sölu og sér tækifæri til að mæla með, uppselja og auka upplifun gestsins
-
Er jákvæð/ur og örugg/ur í samskiptum
-
Getur tekið frumkvæði og verið leiðandi fyrirmynd fyrir samstarfsfólk
-
Getur haldið ró sinni þegar mikið er að gera og tryggt að þjónustustig haldist hátt
Reynsla af vaktstjórn eða sambærilegri ábyrgð er kostur, en ekki skilyrði.
Hlutverk vaktstjórans
Þú leiðir vaktina og ert fyrirmynd á gólfinu. Þú styður við teymið, fylgir eftir þjónustustöðlum, tryggir gott flæði og sérð til þess að gesturinn sé alltaf í fyrsta sæti.
Við viljum að vaktstjórinn sé virkur í þjónustunni, fylgist vel með, taki eftir tækifærum og hjálpi teyminu að skapa betri upplifun og meiri sölu.
Við bjóðum upp á:
-
Skemmtilegt og fjölbreytt starf á Hotel Keflavík
-
Alþjóðlegt umhverfi og fjölbreyttan hóp gesta
-
Gott og metnaðarfullt teymi
-
Tækifæri til að þróast og vaxa í starfi
-
Möguleika á að hafa áhrif á þjónustu og upplifun gesta
-
Starfsmannakjör hjá Hotel Keflavík
Langar þig að vera með?
Ef þú hefur reynslu af þjónustu, áhuga á mat og vínum og metnað fyrir því að skapa frábæra upplifun fyrir gesti, þá viljum við heyra frá þér!
Áhugasamir eru beðnir um að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
Unnið verður úr umsóknum jafnt og þétt og við áskiljum okkur rétt til að hefja viðtöl og mögulega ganga frá ráðningu áður en umsóknarfrestur rennur út.
Enska
Íslenska










