Össur
Össur
Össur

Aðstoðarmanneskja í mötuneyti og afleysing í móttöku

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?

Við leitum að jákvæðum og duglegum liðsfélaga í mötuneyti Össurar þar sem framreiddur er fjölbreyttur og hollur matur fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Starfið felur í sér aðstoð við framreiðslu á mat, uppvask, almenn þrif og aðstoð við önnur tilfallandi verkefni.

Á næstu mánuðum verður opnaður nýr veitingastaður fyrir starfsfólk Össurar sem býður upp á spennandi tækifæri og möguleika fyrir réttan aðila.

Vinnutíminn er frá kl. 7-15 alla virka daga.

Við hvetjum fólk til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur

  • Jákvæðni og afburðar þjónustulund

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Drifkraftur og frumkvæði

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Snyrtimennska og fagleg framkoma

Fríðindi í starfi
  • Mötuneyti
  • Sturtuaðstaða
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Hjólageymsla
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing stofnuð16. febrúar 2024
Umsóknarfrestur25. febrúar 2024
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar