
Aðstoðarfólk óskast í vaktavinnu
Ég er fimmtíu og átta ára gömul kona og er búsett í Reykjavík. Ég er með sjúkdóm sem veldur lömun og þarf stuðning við flest alla hluti og athafnir daglegs lífs. Ég er með stöðugan starfsmannahóp sem aðstoðar mig allan sólahringinn.
Ég óska eftir starfsmanni í vaktavinnu í 70-90% stöðu. Um er að ræða dagvaktir, kvöldvaktir og næturvaktir.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni
-Aðstoð við athafnir daglegs lífs
-Heimilisþrif
Hæfniskröfur
-Frumkvæðni
-Góð samskiptahæfni
-Sjálfstæð vinnubrögð
-Jákvæðni
-Þolinmæði
-Sveigjanlegur í starfi
-Heilsuhraustur
-Hreint sakavottorð
-Viðkomandi þarf að hafa bílpróf
- Íslenskumælandi
-Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára
Laun eru greidd samkvæmt launaflokki NPA kjarasamning Eflingar.
Umsóknir óskast sem allra fyrst.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Hægt er að lesa sér til um notendastýrða persónulega aðstoð og hugmyndafræði um sjálfstætt líf á heimasíðu NPA miðstöðvarinnar, www.npa.is
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected]
Íslenska










