

Aðstoðarmaður í Skólagörðum
Skólagarðar Kópavogs starfa frá því í byrjun júní og fram undir lok ágúst. Í skólagörðunum gefst börnum á aldrinum 6 – 13 ára tækifæri á að rækta sinn eigin matjurtagarð. Auk ræktunarinnar er margvíslegt um að vera. Leikjadagar eru haldnir reglulega þar sem farið er í ýmsa leiki eða ákveðnar uppákomur. Má nefna skoðunarferðir, ratleiki, boltaleiki, drullukökukeppni, íþróttamót, grillveislur og göngu- og hjólreiðatúrar um nágrennið. Skólagarðar eru starfræktir á þremur stöðum í bænum, við Dalveg, Víðigrund og Arnarnesveg (milli Sala- og Kórahverfis). Skemmtilegt starf fyrir einstaklinga sem eru áhugasamir að vinna með börnum og starfa við garðyrkju.
Um er að ræða tímabundið sumarstarf / átaksverkefni Vinnumálastofnunar í tvo og hálfan mánuð á tímabilinu 15.maí – 15. september.
Skilyrði er að umsækjendur séu 18 ára á árinu eða eldri, séu skráðir í nám að hausti 2021 eða skráðir í nám á vorönn 2021. Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi.











