
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Aðstoðarkona óskast
32 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonu í hlutastarf.
Æskilegt er að viðkomandi sé 25 ára eða eldri. Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoð við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna, föndur og kórsöngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi áhuga á handavinnu.
Á heimilinu er lítill hundur.
Vaktaskipulag:
- Morgunvaktir: alla virka daga kl. 08:00 – 11:00
- Kvöldvaktir: alla virka daga kl. 18:30 - 23:30
- Helgarvaktir:
- Föstudags- og laugardagskvöld kl. 18:30 - 23:30
- Laugardagar kl. 12:00 - 15:00
- Sunnudagskvöld kl. 20:30 - 23:30
Ýmsir möguleikar eru í boði varðandi vaktir, allt frá einni fastri vakt í viku upp í fleiri.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er æskilegt.
Starfið hentar vel með skóla eða annarri vinnu.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2021.
Auglýsing birt19. febrúar 2021
Umsóknarfrestur15. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSveigjanleikiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliði óskast á brotaendurhæfingardeild aldraðra
Landspítali

Fjölbreytt starf fyrir snyrtifræðing!
Kosmetik Snyrtistofa & Heildverslun

Þroskaþjálfi - iðjuþjálfi
Sérfræðingarnir ses.

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsfólk óskast í skaðaminnkandi úrræði fyrir konur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Aðstoðarmanneskja óskast í ýmis störf á röntgen- og slysadeild - Tímabundið starf
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Starfsfólk óskast á íbúðarkjarna
Kópavogsbær

Stuðningsfulltrúi í Vinnu og virkni
Ás styrktarfélag

Teymisstjóri í sértækri búsetu - leiðtogahlutverk sem skiptir máli
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Aðstoðarmaður óskast í hlutastarf á Hellu
NPA Setur Suðurlands ehf.

Looking for Assistants — Part-Time (2 Positions)
NPA miðstöðin