Grafa og grjót ehf.
Grafa og grjót ehf.

Aðalbókari

Grafa og grjót ehf. leitar að öflugum aðalbókara sem hefur góð tök á rafrænni umsýslu gagna. Viðkomandi ber ábyrgð á fjárhagsbókhaldi fyrirtækisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi eins og viðskiptafræðimenntun, viðurkenndur bókari eða sambærileg menntun.
Reynsla af bókhaldsstörfum eða sambærilegu starfi er skilyrði.
Góð tölvukunnátta þ.m.t Excel og reynsla af notkun viðskipta- og upplýsingakerfisins DK er kostur.
Þekking á verkbókhaldi er kostur.
Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum.
Frumkvæði og metnaður.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Færsla bókhalds og afstemmingar.
Mánaðarleg uppgjör og skil á bókhaldi til endurskoðanda.
Samantekt fjárhagsupplýsinga og skýrslugerð til stjórnar.
Bókun útgjaldareikninga og samþykktaferli þeirra.
Uppgjör virðisaukaskatts.
Launavinnsla.
Innheimta.
Önnur tilfallandi verkefni.
Auglýsing birt3. september 2021
Umsóknarfrestur15. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Steinhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar