Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Verkefnastjóri samgönguinnviða

Umhverfis- og skipulagssvið óskar eftir að ráða liðsfélaga á skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. Á skrifstofunni starfar kraftmikill hópur sérfræðinga með brennandi áhuga á fjölbreyttum samgöngum og borgarhönnun með áherslu á sjálfbærni og fjölbreyttu, lifandi, og mannvænu borgarumhverfi.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á teymisvinnu og góða þjónustu. Næsti yfirmaður sérfræðings er deildarstjóri samgangna. Skrifstofan er staðsett í Borgartúni 12-14.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring frum- og forhönnunarverkefna á sviði samgangna.
  • Gerð áætlana, forgangsröðun fjármuna og nýframkvæmda í samræmi við stefnumörkun.
  • Umsjón með öflun gagna í tengslum við notkun á samgönguinnviðum eða þörf á breytingum á þeim.
  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnahópum á vegum skrifstofunnar og sviðsins, stefnumótun, skipulagsverkefnum auk framkvæmda‐ og fjárhagsáætlunargerðar.
  • Samskipti við hagsmunaaðila, félagasamtök, notendur og fjölmiðla eða aðra tengiliði vegna væntanlegra framkvæmda og kemur til móts við þarfir þeirra eins og kostur er.
  • Ráðgjöf um framgang og málsmeðferð einstakra verkefna sem falla undir sérsvið.
  • Kynningar fyrir samstarfsfólk, ráð og nefndir borgarinnar, aðrar stofnanir, hagsmunaaðila og íbúa vegna framkvæmda og áætlana borgarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í verk- eða tæknifræði á sviði samgönguverkfræði eða sambærilegu sviði.
  • A.m.k. fimm ára starfsreynsla á sviði samgönguverkfræði eða sérfræðistörfum á sambærilegu starfssviði. 
  • Mikil þekking á hönnun samgöngumannvirkja, umferðaröryggi, hljóðvist og skipulagsmálum. Þekking á stefnumörkun, áætlanagerð og virkni mismunandi samgönguinnviða. 
  • Stjórnunarhæfileikar til að leiða teymisvinnu og stýra starfi aðkeyptra ráðgjafa.
  • Þekking og hæfni til að vinna og leiða greiningar- og þróunarverkefni varðandi nýja tækni í borgarsamgöngum
  • Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti. 
  • Rík þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist hönnun og greiningu á samgöngum.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að setja fram ritað mál fyrir stjórnsýslu borgarinnar (B1-B2) og enskukunnátta (B1-B2) í samræmi við samevrópskan tungumálaramma.
  • Þekking á þriðja tungumáli t.d. norðurlandamáli, þýsku eða pólsku er kostur.
Utworzono ofertę pracy12. May 2025
Termin nadsyłania podań25. May 2025
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.TechnologPathCreated with Sketch.Inżynier
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia