Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Umsjónarkennari í 3. - 4. bekk Smáraskóla

Smáraskóli leitar að umsjónarkennara í 3. - 4. bekk fyrir skólaárið 2026 - 2027. Í Smáraskóla er litið á hvern árgang sem eina heild þar sem teymi kennara vinna með nemendum.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í árgangateymi með umsjón.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta
Utworzono ofertę pracy27. April 2026
Termin nadsyłania podań4. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Opieka (dzieci/seniorzy/niepełnosprawni)PathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe