Landakotsskóli
Landakotsskóli
Landakotsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Landakotsskóla

Landakotsskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullum umsjónarkennara á yngsta stigi til starfa við almennu deild skólans. Um er að ræða starf í öflugu skólasamfélagi þar sem lögð er áhersla á skapandi skólastarf, fagmennsku og framúrskarandi menntun.

Um 100% framtíðarstarf er að ræða.

Um Landakotsskóla

Landakotsskóli byggir á sterkum grunni og ríkri hefð en horfir jafnframt til framtíðar með markvissri skólaþróun og nýsköpun. Skólinn er sjálfstætt starfandi grunnskóli sem lýtur sérstakri stjórn og er fyrir 1.–10. bekk, auk deildar fimm ára barna og frístundaheimilis.

Í skólanum eru um 360 nemendur í tveimur deildum:

  • almenn deild sem fylgir Aðalnámskrá og þar sem kennt er á íslensku

  • alþjóðleg deild sem fylgir Cambridge námskrá og þar sem kennt er á ensku

Við skólann starfa um 50 kennarar og 30 aðrir starfsmenn. Skólasamfélagið er fjölbreytt, alþjóðlegt og einkennist af góðum starfsanda, metnaði og sterkri liðsheild.

Lögð er rík áhersla á listkennslu og skapandi starf þvert á faggreinar, samhliða öflugri kennslu í kjarnagreinunum íslensku, tungumálum og stærðfræði. Samskipti, samvinna, sköpun, framtíðarhugsun og vellíðan eru leiðarljós í skólastarfinu. Markmið skólans er að nemendur nái að vaxa og dafna í skólanum, verði undirbúnir til að ákvarða eigin framtíð og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla og umsjón nemenda á yngsta stigi. 

  • Samstarf við kennara á yngsta stigi.  

  • Virkt samstarf við foreldra um nám, líðan og velferð nemenda.  

  • Samvinna við starfsfólk skólans um fagleg málefni og þróun skólastarfs. 

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf fyrir kennslu í grunnskóla. 

  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er æskileg. 

  • Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi. 

  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum á fjölbreyttan og skapandi hátt.  

  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. 

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi. 

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði 

  • Góð enskukunnátta er æskileg 

  • Hreint sakavottorð 

Fríðindi í starfi

Við bjóðum  

  • Fjölbreytt starf í skapandi og metnaðarfullu umhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun 

  • Öflugt alþjóðlegt samfélag fagfólks á sviði menntunar 

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á skólaþróun 

Utworzono ofertę pracy21. April 2026
Termin nadsyłania podań5. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Túngata 15, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.KreatywnośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Komunikacja telefonicznaPathCreated with Sketch.Komunikacja przez e-mailPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe