Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Ölfus

Deildarstjóri unglingadeildar Grunnskólans í Þorlákshöfn

Við í Grunnskólanum í Þorlákshöfn leitum að deildarstjóra unglingadeildar í 100%
starf frá 1. ágúst 2026 um er að ræða afleysingu til eins skólaárs. Deildarstjóri er
hluti af fjögurra manna stjórnendateymi og tekur þátt í daglegri stjórnun og
faglegri forystu skólans.


Í skólanum eru um 290 nemendur og 70 starfsmenn. Unnið er eftir hugmyndafræði
Uppeldis til ábyrgðar, teymiskennslu og leiðsagnarmats, auk þátttöku í verkefnum
eins og Grænfána og Heilsueflandi skóla.
Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og velgengni. Frekari upplýsingar má
finna á heimasíðu skólans.

Umsókninni skal fylgja afrit af leyfisbréfi og greinargóð skýrsla/ferilskrá um fyrri störf umsækjanda,
menntun, kennslu – og stjórnunarreynslu og þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað
geta ljósi á færni til að sinna starfi deildarstjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um
hugmyndir umsækjanda og sýn á starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands
vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 8. maí 2026.
Nánari upplýsingar veita: Ólína Þorleifsdóttir skólastjóri og Jóhanna Margrét, sviðstjóri Fjölskyldu-og fræðslusviðs [email protected] / [email protected]
Umsóknum er skilað í gegnum rafræna umsókn á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir faglega forystu í skólastarfi og skólaþróun í samvinnu við stjórnendur og
    kennara.
  • Tekur þátt í mótun og framkvæmd stefnu skólans.
  • Heldur utan um kennsluþörf og stoðþjónustu nemenda í 8. 
    –10. bekk.
  • Stýrir nemendateymum, valgreinum og nemendaráði í unglingadeild.
  • Stýrir stigsfundum og skipulagi í unglingadeild.
  • Annast önnur verkefni sem skólastjóri felur honum. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla af kennslu á unglingastigi og þróunarstarfi.
  • Þekking á skólaþróun, m.a. Uppeldi til ábyrgðar, leiðsagnarnámi og innra mati.
  • Góð hæfni í teymisvinnu, samskiptum og skipulagi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og áhugi á skólaþróun.
  • Góð tækniþekking, reglusemi og stundvísi.
Utworzono ofertę pracy24. April 2026
Termin nadsyłania podań8. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Egilsbraut 35, 815 Þorlákshöfn
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Ogólne umiejętności technicznePathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe