Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Tímabundið starf ráðgjafa á meðferðarheimilinu Esju

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar stöðu ráðgjafa á Esju, meðferðarheimili fyrir unglinga. Starfsstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi.

Starfið felur í sér einstaklingsmiðaðan stuðning við unglinga og þátttöku í meðferðarstarfi sem miðar að því að stuðla að velferð, þroska og farsæld þeirra.

Um er að ræða tímabundnar stöður í 50% og 100% starfshlutfalli til 31.8.2027 í vaktavinnu. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður stuðningur og umönnun unglinga í daglegu lífi.
  • Þátttaka í meðferðarstarfi og framkvæmd einstaklingsbundinna meðferðaráætlana í samstarfi við stjórnendur og fagaðila.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tómstundastarfs með unglingum.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, forsjáraðila og aðra samstarfsaðila.
  • Að stuðla að öruggu og styðjandi umhverfi fyrir unglinga.
  • Vinna samkvæmt verklagsreglum heimilisins og stefnu stofnunarinnar.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem að nýtist í starfi.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
  • Þekking og/eða reynsla af meðferðarstarfi með unglingum er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Sveigjanleiki og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.
  • Gild ökuréttindi.
Utworzono ofertę pracy27. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe