Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sálfræðingur í fagteymi meðferðar

Barna- og fjölskyldustofa leitar að öflugum sálfræðingi í fagteymi meðferðar. Starfsstöð er Borgartún 33, með viðveru á meðferðarheimilum BOFS sem eru staðsett á Akureyri, Rangárvöllum og Reykjavík.

Í fagteymi meðferðar starfa sálfræðingar og aðrir sérfræðingar. Hlutverk teymisins er að hafa faglega umsjón með greiningu og meðferð skjólstæðinga á meðferðarheimilum stofunnar. Teymið veitir einnig starfsfólki meðferðarheimilanna stuðning og fræðslu, auk þess að sinna ráðgjöf og móttöku umsókna frá barnaverndarþjónustum um vistun á meðferðarheimilum. Jafnframt tekur teymið þátt í faglegri þróun innan málaflokksins og veitir stuðning og handleiðslu þvert á svið BOFS.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á sálfræðiþjónustu á meðferðarheimilum BOFS, sem eru Esja, Bjargey, Lækjarbakki og Stuðlar. Meðferðarheimilin eru að hluta staðsett utan höfuðborgarsvæðisins og eru ferðalög því hluti af starfinu.
  • Umsjón með greiningu og meðferð, þar með talið stuðningur við fjölskyldur og eftirfylgd.
  • Gerð og framkvæmd einstaklingsbundinna meðferðaráætlana fyrir skjólstæðinga.
  • Halda utan um teymi skjólstæðinga.
  • Umsjón með innskrift, stöðufundum og útskrift skjólstæðinga í samráði við forstöðumann meðferðarheimilis.
  • Skrifa greiningar- og meðferðarskýrslur.
  • Ábyrgð á innleiðingu og/eða viðhaldi tiltekinna gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi, m.a. áfallamiðaðrar nálgunar (Three Pillars), áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing, MI) og atferlismeðferðar.
  • Þátttaka í almennri stefnumótun og þróun á sviði sálfræðiþjónustu og meðferðar BOFS.
  • Fræðsla, ráðgjöf, handleiðsla og samstarf við starfsfólk meðferðarheimila BOFS, barnaverndarþjónusta, skóla, heilbrigðisstofnana og annarra stofnana.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem sálfræðingur á Íslandi.
  • Reynsla af greiningu og mati á frávikum í hegðun og þroska barna og unglinga, þ.m.t. notkun viðeigandi matstækja.
  • Reynsla af meðferðarstarfi með börnum og unglingum með alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og færni til að handleiða og eiga samvinnu við samstarfsfólk innan stofnunar sem utan. 
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg. 
Utworzono ofertę pracy25. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgartún 33, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe