Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur í greiningarteymi - Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á að vinna í öflugu þverfaglegu teymi sem sinnir greiningu og ráðgjöf fyrir börn og unglinga með geð- og taugaþroskavanda?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að sálfræðingi til starfa í greiningarteymi Geðheilsumiðstöðvar barna. Teymið sinnir nánari greiningu barna og unglinga (6-18 ára) þegar sterkar vísbendingar eru um ADHD, einhverfuróf eða skyldar raskanir, svo sem tilfinningavanda, hegðunarerfiðleika og samskiptavanda.

Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 100% tímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni sálfræðing fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi við greiningu og ráðgjöf vegna geð- eða taugaþroskavanda barna. Sálfræðingur tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Sálfræðingur leggur fyrir ýmis sérhæfð greiningarviðtöl og sálfræðileg próf.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem sálfræðingur

  • A.m.k. 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við greiningu á geð- og taugaþroskavanda barna

  • Reynsla og þekking af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geð- og taugaþroskaraskana barna er æskileg.

  • Sérhæfing á sviði taugaþroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum æskileg

  • Þekking og reynsla af einhverfugreiningum æskileg

  • Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Faglegur metnaður

  • Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta

  • Góð almenn enskukunnátta

Fríðindi í starfi

Sí- og endurmenntun

Heilsustyrkur 

Samgöngustyrkur

Utworzono ofertę pracy26. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe