Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Efra Breiðholti

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Efra Breiðholti laust til umsóknar.

Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu með þjónustuþarfir skjólstæðinga ávallt í fyrirrúmi. Starf fagstjóra er ábyrgðarmikið, krefjandi og reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni viðkomandi.

Heilsugæslan Efra Breiðholti leggur áherslu á góðan starfsanda og vinnur eftir þjónustulíkani þar sem teymisvinna fjölbreyttra heilbrigðisstétta og forflokkun erinda eru í forgrunni.

Markmiðið með teymismiðaðri heilsugæslu er að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem best. Þetta er þróun sem styrkir þverfaglega samvinnu og gefur læknum meira svigrúm til að einbeita sér að málum skjólstæðinga sem virkilega þurfa á læknisaðstoð að halda. Öll erindi eru forflokkuð af reynslumiklum hjúkrunarfræðingum og komið í réttan farveg hjá þeim heilbrigðisstarfsmanni sem er best til þess fallinn að leysa úr því.

Starfshlutfall er 100% ótímabundið í starf til frá og með 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulag

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með forstöðumanni, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

  • Er forstöðumanni innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans

  • Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar

  • Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga

  • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu

  • Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi

  • Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðva

  • Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sérfræðingur í heimilislækningum
  • Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði

  • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar

  • Nám í stjórnun er kostur

  • Hæfni í mannlegum samskiptum

  • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt

  • Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg

  • Reynsla af og áhugi á teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Utworzono ofertę pracy25. November 2026
Termin nadsyłania podań9. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.LekarzPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe