Vínbúðin
Vínbúðin
Vínbúðin

Forstöðumaður vöruvals og innkaupa

Við leitum að framsæknum og metnaðarfullum aðila til að ganga til liðs við öflugan hóp starfsfólks ÁTVR. Vöruval og innkaup ber ábyrgð á vöruvalskerfi ÁTVR og þróun þess. Í því felst að móta reglur um vöruval, annast innkaup í takt við eftirspurn viðskiptavina og annast samskipti við birgja.

Við leitum að lausnamiðuðum leiðtoga sem hefur hæfni til að hvetja teymi til árangurs og leiða breytingar og umbætur. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptafærni og eiga auðvelt með að byggja upp árangursríkt samstarf við fjölbreyttan hóp samstarfsfólks og birgja. Mikilvægt er að viðkomandi hafi góða færni í greiningu og framsetningu gagna og leggi áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Vörustýringar og dreifingar.

Verkefni og ábyrgð

  • Leiða teymi vöruvals og innkaupa
  • Þróun og viðhald vöruvalskerfis
  • Tryggja fylgni við lög og reglur um vöruval og innkaup
  • Greina söluárangur, markaðsþróun og væntingar viðskiptavina
  • Tryggja fagmennsku, gagnsæi og jafnræði í samskiptum við birgja
  • Tryggja skilvirk innkaup og vörustýringu til Vínbúða
  • Nýta tækfæri til umbóta og innleiðing stafrænna lausna
  • Markmiðasetning og mat á árangri
  • Byggja upp vöruþekkingu og miðla til starfsfólks
  • Hafa umsjón með gæðamálum og lögfræðilegum málefnum tengdum vöruvali og innkaupum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Að minnsta kosti þriggja ára stjórnunarreynsla
  • Góð leiðtogafærni og áhersla á árangur
  • Reynsla af vörustýringu, innkaupum eða sambærilegum verkefnum
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Greiningarhæfni og geta til að hagnýta gögn við ákvarðanatöku
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og markvissan hátt
  • Hæfni til að skapa traust og eiga fagleg samskipti við hagsmunaaðila
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Mjög góð tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 7.12.2026.
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á www.vinbudin.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Snorradóttir – [email protected].

ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.

Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.

Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.

Utworzono ofertę pracy26. November 2026
Termin nadsyłania podań7. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Stuðlaháls 2, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.AnalitykaPathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe