

Málastjóri í geðrofs- og samfélagsgeðteymi
Lausar eru þrjár stöður í geðrofs- og samfélagsgeðteymi fyrir málastjóra. Við leitum að málastjóra sem hefur áhuga á þverfaglegri teymisvinnu og vinnu með fólki með geðrænar áskoranir. Starfsemin er staðsett á göngudeild Klepps. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar. Stöðurnar eru lausar frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf og dagvinnu er að ræða.
Meginverkefni teymanna er að veita fólki sem greinst hefur með alvarlega geðsjúkdóma og aðstandendum þeirra þverfaglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem byggir á batamiðaðri hugmyndafræði og skaðaminnkandi nálgun, auk geðlæknisfræði. Þjónustan fer bæði fram á göngudeild og í nærumhverfi þjónustuþeganna.
Markmið meðferðarinnar er að stuðla að bata, rjúfa félagslega einangrun og auka virkni og lífsgæði í daglegu lífi. Málastjórum standa til boða mikil tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri handleiðslu og faglegum stuðningi. Í teyminu starfa um 25 manns; læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, atvinnuráðgjafar, jafningjar og málastjórar með fjölbreyttan bakgrunn.
Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og mati á einstaklingsbundnum þörfum. Málastjóri sinnir meðferð og eftirfylgd, þróun meðferðaráætlana og vöktun og mati á árangri þjónustunnar. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda. Virkt umbótastarf er á deildinni, og mikil tækifæri til að leiða verkefni og hafa áhrif á þróun þjónustunnar.
Góður starfsandi ríkir á deildinni og starfsumhverfið er fjölskylduvænt. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband ef óskað er eftir frekari upplýsingum um starfið.
- Málastjórn, þ.m.t. greining á þjónustuþörf og færni og gerð meðferðaráætlana, regluleg samskipti, hvatning, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur
- Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Virk þátttaka í meðferð einstaklinga og stuðningi við aðstandendur
- Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi deildar
- Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Önnur fjölbreytt verkefni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Faglegur metnaður og einlægur áhugi á að þjónusta og styðja einstaklinga með alvarlegar geðraskanir
- Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala eða reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Reynsla af samfélagsgeðþjónustu er kostur
- Góð samskiptahæfni
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Stundvísi, áreiðanleiki og öguð vinnubrögð
- Skipulagsfærni, sjálfstæði og frumkvæði
- Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
- Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
- Gilt ökuskírteini
islandzki
Angielski









































