Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðardeildarstjóri – tímabundið starf - Sóltún Reykjavík

Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sóltúni Reykjavík. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Um er að ræða tímabundið starf í 100% starfshlutfalli í dagvinnu fyrir tímabilið 1. mars 2027-31. desember 2027 vegna afleysingar í fæðingarorlofi.


Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hefja sinn stjórnunarferil í stuðningsríku og hlýlegu umhverfi.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiðir og skipuleggur hjúkrun á deild í samráði við deildarstjóra
  • Ber meginábyrgð á klínískum viðfangsefnum og þjónustu við íbúa í samræmi við kröfur um þjónustu á hjúkrunarheimilum
  • Tryggir gæði og samfellu í þjónustunni í samstarfi við deildarstjóra
  • Tekur þátt í fræðslu og kennslu fyrir nýtt starfsfólk og nemendur
  • Ber ásamt deildarstjóra ábyrgð á móttöku nýrra íbúa
  • Tekur þátt í teymisvinnu og RAI mati
  • Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgðarkennd og faglegur metnaður
  • Góð klínísk færni og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvætt viðmót
  • Hjúkrunarreynsla í öldrunarþjónustu kostur
  • Góð færni í verkefnastjórnun og teymisvinnu
  • Hreint sakavottorð skilyrði


Starfskjör og fyrirkomulag

  • Fjölbreytt og krefjandi starf
  • Tækifæri til að þróast í starfi
  • 100% dagvinna
  • Tímabundin ráðning fyrir tímabilið 1. mars 2027 - 31. desember 2027
  • Laun eru greidd samkvæmt viðeigandi kjarasamningi
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur


Við bjóðum upp á metnaðarfullt og fjölbreytt starf í faglegu og stuðningsríku umhverfi. Í Sóltúni Reykjavík starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúanna.


Sóltún Reykjavík er hjúkrunarheimili með 92 einstaklingsíbúðir. Heimilið skiptist í heimilislegar einingar með 8 íbúum í hverri, þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og virðingu fyrir einstaklingnum.


Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsti styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Freyja Daðadóttir, deildarstjóri - [email protected]

    Utworzono ofertę pracy27. November 2026
    Termin nadsyłania podań13. December 2026
    Znajomość języków
    islandzkiislandzki
    Wymagane
    Doskonale
    Lokalizacja
    Sóltún 2, 105 Reykjavík
    Rodzaj pracy
    Kompetencje
    PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.PielęgniarkaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Elastyczność
    Zawody
    Tagi zawodowe