Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjórar á Stuðlum

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með ungmennum?

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar þrjár stöður hópstjóra á Stuðlum. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra Stuðla. Um er að ræða þrjár fastráðningar í 100% stöður í vaktavinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á vaktstjórn og verkaskiptingu meðal ráðgjafa í samvinnu við deildarstjóra.
  • Samhæfing verkefna á Stuðlum í fjarveru stjórnenda.
  • Veita skjólstæðingum einstaklingsbundinn stuðning í samvinnu við stjórnendur og fagaðila með áherslu á uppbyggilega virkni og vellíðan.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Hafa umsjón með dagnótaskrifum um framgang vistunar, stöðu og líðan skjólstæðinga.
  • Vinna eftir verklagsreglum Stuðla og stefnu stofnunarinnar.
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • BA/BS próf sem nýtist í starfi er æskilegt.
  • Reynsla af störfum með ungmennum með alvarlegan hegðunar- og /eða vímuefnavanda og fjölskyldum þeirra.
  • Góð þekking og/eða reynsla af notkun áhugahvetjandi samtals (Motivational Interviewing), ART (Aggression Replacement Training) og áfallamiðaðri nálgun er kostur (Three Pillars of Trauma Informed Care).
  • Mjög gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Mikil færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Sveigjanleiki og þjónustulund.
  • Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður.
  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
  • Gild ökuréttindi.
Utworzono ofertę pracy26. November 2026
Termin nadsyłania podań11. December 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe