
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs.
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings er fagleg og samþætt skóla- og velferðarþjónusta með farsæld barna og fjölskyldna að leiðarljósi. Meginstarfsstöð þjónustunnar er í Laugarási en starfssvæðið er víðfeðmt og geta starfsmenn valið starfsstöð á starfssvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni. Á starfssvæðinu eru um 4500 íbúar, þar af um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri sem sækja nám í 6 leikskólum og 6 grunnskólum.
Sveitarfélögin sem standa að Skóla- og velferðarþjónustunni eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur og hafa þau flest hlotið viðurkenningu sem framúrskarandi vinnustaðir.

Þjónusturáðgjafi
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings bs. (SVÁ) leitar að þjónusturáðgjafa heimaþjónustu í 80% starf. Starfsstöð er að Launrétt 3, 806 Laugarási.
Vilt þú nýta skipulagshæfni þína og þjónustulund í fjölbreyttu starfi þar sem samskipti, samvinna og vönduð vinnubrögð eru í fyrirrúmi?
Þjónusturáðgjafi styður við daglega framkvæmd samþykktrar stuðnings- og heimaþjónustu, tekur á móti erindum og aðstoðar starfsfólk við skráningu og skjalavinnslu.
Í starfinu átt þú náið samstarf við starfsfólk SVÁ, þjónustunotendur og aðstandendur þeirra. Þú stuðlar að því að samþykkt þjónusta komist til framkvæmda með skipulegum hætti og að upplýsingar séu skráðar og miðlaðar rétt og tímanlega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæmd samþykktrar stuðnings- og heimaþjónustu.
- Uppfæra verk- og heimsóknaáætlanir.
- Miðla upplýsingum til starfsfólks og þjónustunotenda.
- Móttaka erinda.
- Leiðbeina starfsfólki um skráningu og viðeigandi verkferla.
- Taka þátt í gæðastarfi sem tengist starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist við þjónustu, skrifstofustörf eða skipulag velferðarþjónustu.
- Reynsla af þjónustu, skrifstofustörfum eða verkefnaskipulagi er æskileg.
- Reynsla af stuðnings- eða heimaþjónustu er kostur.
- Góð skipulags-, samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvufærni og nákvæmni.
Við bjóðum
- Fjölbreytt þjónustu- og skipulagsstarf í þverfaglegu starfsumhverfi.
- Tækifæri til að taka þátt í umbótum á skráningu, upplýsingaflæði og verkferlum.
- Starf þar sem samvinna, virðing og áreiðanleiki eru höfð að leiðarljósi.
Utworzono ofertę pracy23. November 2026
Termin nadsyłania podań11. December 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Launrétt 3
Rodzaj pracy
Kompetencje
Ogólne umiejętności obsługi komputeraInterakcje międzyludzkieAdministracja publicznaOrganizacjaPraca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Gjaldkeri 50% starf - Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Hópstjórar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa

Viltu vinna að því að fólk stjórni eigin lífi? - Ráðgjafi óskast
NPA miðstöðin

Bakdyravörður – tímabundið starf
Þjóðleikhúsið

Tech Lead / Tæknilegur vörustjóri á ferla- og upplýsingatæknisviði Eimskips
Eimskip

Tímabundið hlutastarf í stöðu ráðgjafa á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Corporate Services Officer
British Embassy Reykjavik

Framkvæmdastjóri Badmintonsambands Íslands
Badmintonsamband Íslands

Ráðgjafar á búsetukjörnum á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Verkefnastjóri launa og rannsóknaverkefna
Háskólinn á Akureyri

Senior Executive Assistant (Anticipatory)
Sendiráð Kanada