Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á fjármálasviði

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sumarstarfsmann á fjármálasvið til ýmissa starfa innan reikningshalds- og uppgjörsdeildar, fjárreiðudeildar og hagdeildar. Við leitum að aðila sem er talnaglöggur og vel tölvufær. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Starfið hentar vel fyrir nema í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu námi.

Fjármálasvið er eitt af stoðsviðum sveitarfélagsins og starfa 20 manns á sviðinu. Sviðinu er skipt í fjárreiðudeild, reikningshalds- og uppgjörsdeild, hagdeild, innkaupadeild og launadeild.

Um er að ræða 100% sumarstarf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skráningu reikninga og færsla bókhalds
  • Afstemmingar
  • Innheimta
  • Ýmsar tölulegar greiningar
  • Símsvörun og upplýsingagjöf í gegnum tölvupóst
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf
  • Almenn góð tölvukunnátta og góð kunnátta í Excel, Power Point og Power BI er kostur
  • Reynsla af bókhaldsstörfum og fjárhagskerfinu Navision er æskileg
  • Góð greiningarhæfni
  • Nákvæmni í vinnubrögðum
  • Jákvæðni, lausnarmiðuð hugsun og þjónustulund
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Andri Berg Haraldsson deildarstjóri reikningshalds- og uppgjörsdeildar [email protected] og Þórey Hallbergsdóttir deildarstjóri fjárreiðudeildar [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy13. March 2026
Termin nadsyłania podań25. March 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe