Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Félagsliði í heimaþjónustu - Sumarstarf

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar.

Starfshlutfall er allt að 100% og bæði vantar í dagvinnu sem og vaktavinnu á kvöldin og um helgar. Um er að ræða sumarafleysingar.

Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.

Helstu verkefni:

  • Persónuleg aðstoð og stuðningur við næringu og hreyfingu
  • Veitir aðstoð við innkaup
  • Gefur fyrirframskömmtuð lyf
  • Þrif á heimilum notenda
  • Aðstoð með skipulag heimilis, þrif og fleira
  • Samstarf við aðra starfsmenn stuðningsþjónustunnar
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Próf af styttri námsbrautum s.s. félagsliðanám eða sjúkraliðanám
  • Reynsla af starfi í stuðningsþjónustu
  • Jákvæðni í starfi, þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta að lágmarki á stigi A2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Bílpróf

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.

Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri [email protected] eða í síma 585 5500.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy10. March 2026
Termin nadsyłania podań10. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe