Eskimos Iceland
Eskimos Iceland

Fjármála- og rekstrarsvið í ferðaþjónustufyrirtæki


Eskimos leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á fjármála og rekstrarsviði fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi með áhuga og metnað til að starfa á sviði fjármála og rekstrar og taka virkan þátt í áframhaldandi vexti og þróun félagsins. Starfið felur í sér að styðja við arðsemi og skilvirkni rekstrar, bætta nýtingu fjármuna og markvissa uppbyggingu til framtíðar.

Starfið hentar bæði þeim sem eru í upphafi ferils síns og vilja byggja upp þekkingu og reynslu, sem og þeim sem búa yfir dýpri starfsreynslu á sviði fjármála og rekstrarstjórnunar.

Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem þú færð tækifæri til að axla ábyrgð, þróast í starfi og vinna í nánu samstarfi við eigendur og framkvæmdastjóra.

Um fyrirtækið:

Eskimos er ferðaskrifstofa staðsett í Reykjavík sem samanstendur af metnaðarfullu og fjölbreyttu teymi.

Við vinnum saman að því að skapa ógleymanlegar ferðir fyrir gesti okkar með áherslu á sveigjanleika, fagmennsku og góð samskipti.

Virkilega skemmtilegur vinnustaður með góðum starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með bókhaldi, afstemmingum, uppgjöri og gerð ársreikninga
  • Gerð og framkvæmd fjárhagsáætlana og greiðsluáætlana
  • Fjármálagreiningar, kostnaðargreiningar, arðsemisgreiningar og skýrslugerð til stjórnenda
  • Eftirlit með kostnaði, innheimtu, gjöldum og lausafé
  • Samskipti við endurskoðendur, banka, lánardrottna og opinberar stofnanir
  • Þátttaka í stefnumótun og ákvarðanatöku sem snýr að rekstri

(Verkefni munu þróast og aukast í takt við reynslu, áhuga og ábyrgð viðkomandi.)

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla á sviði fjármála, rekstrar, viðskipta eða sambærilegs náms
  • Framúrskarandi skipulagshæfni, sjálfstæði og ábyrgðartilfinning
  • Góð tölvukunnátta (t.d. Excel, bókhaldskerfi, Power BI)
  • Metnaður, jákvætt hugarfar og vilji til að takast á við áskoranir
  • Geta til að leiða breytingar og vinna með teyminu
Utworzono ofertę pracy16. February 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Skútuvogur 1, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.RzetelnośćPathCreated with Sketch.Sprawozdanie finansowePathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.BudżetowaniePathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.PrecyzjaPathCreated with Sketch.Przepływy pieniężnePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Sprawozdanie finansowe
Zawody
Tagi zawodowe