

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Hjarta-, lungna og augnskurðdeild og nýrnalækningar 12G á Landspítala við Hringbraut óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan einstakling í býtibúr og ritarastarf. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og eiga auðvelt með að vinna í teymi. Um er að ræða 30% starf í vaktavinnu virka daga og um helgar frá 16. september 2025 eða eftir samkomulagi.
Deildin er 16 rúma legudeild sem tilheyrir hjarta- og æðaþjónustu og er staðsett á 2. hæð á Landspítala við Hringbraut. Deildin er ætluð sjúklingum sem fara í hjarta-, lungna og/eða augnaðgerðir og eru með lokastigs nýrnabilun sem og sjúklingum annarra sérgreina eftir aðstæðum. Áskoranirnar eru margar og fjölbreyttar.
Á deildinni starfar metnaðarfullur hópur ýmissa starfstétta s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, ritara og sérhæfðra starfsmanna, auk annarra stoðstétta sem koma eftir þörfum s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Á deildinni er lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks, samvinnu teyma og stöðugar umbætur.
Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju starfsfólki og veita góða og markvissa aðlögun.


















































