

Starf í þjónustumiðstöð heilbrigðis- og upplýsingatækni
Við leitum að lausnamiðuðum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í teymið okkar. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs vegna afleysinga. Hlutverk teymisins er að veita öðru starfsfólki spítalans þjónustu á sviði heilbrigðis- og upplýsingatækni. Við aðstoðum notendur í gegnum síma, leysum mál á vettvangi, ráðleggjum með búnað, veitum aðgang að kerfum og grúskum í flóknum málum sem upp koma.
Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi enda rekur Landspítali eitt stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnutíma er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Hjá þjónustumiðstöð starfa 37 einstaklingar, en deildin er hluti af þróunarsviði sem ber ábyrgð á tölvubúnaði og tölvukerfum spítalans ásamt öllum lækningatækjabúnaði.
Hlutverk þróunarsviðs er að styðja sem best við starfsemi spítalans með tæknilausnum og leiða stafræn framþróunarverkefni sem miða að hærra þjónustustigi og aukinni skilvirkni.




















































