Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Sérfræðingur net og fjarskiptalausna

Erum við að leita að þér?

Við leitum að jákvæðum og öflugum einstaklingi sem brennur fyrir fjarskiptalausnum og netöryggi. Viðkomandi gegnir hlutverki í viðbragðsáætlun við netvá og tekur virkan þátt í að tryggja öryggi upplýsingakerfa. Viðkomandi þarf að búa yfir metnaði og drifkrafti til að takast á við spennandi og krefjandi verkefni sem tengjast uppbyggingu grunninnviða í upplýsingatækni.

Hlutverk Landsnets er að annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins á Íslandi. Stjórnkerfi raforkukerfisins á Íslandi byggir á rekstraröryggi net- og tölvukerfa og því er um krefjandi og ábyrgðarmikið starf að ræða. Upplýsingatækni gegnir lykilhlutverki í framþróun fyrirtækisins og fram undan eru krefjandi og skemmtileg verkefni í samstarfi við innlenda og erlenda birgja.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leiða umbótaverkefni og innleiðingu nýrra lausna

Hönnun á högun fjarskipta

Eftirlit með afköstum og rekstraröryggi netkerfa

Framkvæma viðhaldsvinnu á netbúnaði eftir þörfum

Samskipti við innri og ytri samstarfsaðila

Stýra áhættu og tryggja að fjarskiptakerfi styðji við rekstraröryggi

Menntunar- og hæfniskröfur

Nám í tölvunarfræði, kerfisfræði eða menntun sem nýtist í starfi.

Góð þekking á netbúnaði frá helstu framleiðendum

Gráður frá helstu framleiðendum er kostur

Reynsla af rekstri netkerfa

Góð samskiptafærni og geta til að vinna í teymi

Sjálfstæð og öguð vinnubrögð

Þekking á ISO27001 staðlinum

Fríðindi í starfi

Við bjóðum starfsfólki okkar upp á góða vinnustaðamenningu, dásamlegt mötuneyti, líkamsræktaraðstöðu, sveigjanlegt vinnuumhverfi, velferðar- og starfsmenntunarstyrki, öflugt starfsmannafélag auk frábæra vinnufélaga.

Utworzono ofertę pracy6. June 2025
Termin nadsyłania podań22. June 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Rangárvöllum, 603 Akureyri
Miðási 7, 700 Egilsstaðir
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Oznaczenia