
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með 25 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa um 3500 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Hugbúnaðarsérfræðingur með áhuga á sjálfvirkni
Ert þú hæfileikaríkur hugbúnaðarsérfræðingur með ástríðu fyrir að þróa vandaðan og skilvirkan hugbúnað? Þrífst þú vel í hópavinnu þar sem þú getur lagt þitt að mörkum við hönnun, þróun og viðhaldi hugbúnaðarkerfa?
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum hugbúnaðarsérfræðingi sem hefur áhuga á gagnavinnslu, sjálfvirkni og samþættingu kerfa.
Teymið þróar og rekur hugbúnað sem hefur það markmið að koma í veg fyrir tekjuleka, auka skilvirkni og skalanleika í veittri þjónustu til viðskiptavina. Rekstrarumhverfi Advania er stórt og samsett úr fjölda kerfa og verkefnin eru því fjölbreytt og krefjandi.
Hlutverk og ábyrgð
- Þróun, viðhald og rekstur hugbúnaðar
- Innleiðinga kerfa í lausnirnar okkar
- Samskipti við þjónustueigendur og greina kröfur þeirra
- Taka virkan þátt í Scrum athöfnum
- Fylgjast með nýjum straumum og stefnum í faginu
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða aðra reynslu sem nýtist í starfi
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Hæfni til að vinna í teymi
- Góð samskiptahæfni
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
- Go
- PHP
- JavaScript
- SQL (Postgresql)
- Samþætting kerfa
- Greining og framsetning gagna
Utworzono ofertę pracy3. June 2025
Termin nadsyłania podań16. June 2025
Znajomość języków

Wymagane
Lokalizacja
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (1)
Podobne oferty pracy (12)

Sérfræðingur net og fjarskiptalausna
Landsnet hf.

Hugbúnaðarsérfræðingur í veflausnum
Sjóvá

Sérfræðingur í greiningardeild
Vinnumálastofnun

Ráðgjafi í þjónustuteymi
dk hugbúnaður ehf.

Gagnaforritari í tengslum við vísindarannsóknina Blóðskimun
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Við leitum að hugbúnaðarsérfræðingum
Orkuveitan

Sérfræðingur á rekstrarvakt
Reiknistofa bankanna

Ráðgjafi í tækniteymi
dk hugbúnaður ehf.

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu
Gildi

Front-end Developer
Icelandair

Sérfræðingur í innlána- og greiðsluteymi
Reiknistofa bankanna

Systems Administrator / Kerfisstjóri
RVX Productions ehf.