
Ráðgjafi kerfisbundins frágangs
NORCOM sérhæfir sig í kerfisbundnum frágangi tæknikerfa í byggingum.
Við vinnum náið með verkkaupum og hönnunarhópum frá fyrstu stigum forhönnunar og allt til verkloka, með það að markmiði að tryggja að virkni bygginga standist allar kröfur – hvort sem um ræðir kröfur verkkaupa, staðla eða opinberar reglugerðir.
Við leggjum sérstaka áherslu á að kröfur til virkni séu skýrt skilgreindar í hönnunargögnum og síðan sannreyndar í prófunarskýrslum við verklok. Verkefnin eru unnin í samræmi við aðferðarfræði kerfisbundins frágangs og ASHRAE Guideline 0-2019 for Commissioning.
Við nýtum LEAN hugmyndafræði í hönnunar- og framkvæmdarstjórn og bjóðum viðskiptavinum upp á sérhæfða ráðgjöf í notkun taktplanleggingar við gerð framkvæmdaáætlana. Þar notum við forritið Rökkr, sem við höfum þróað sérstaklega með þarfir byggingargeirans í huga.
Við höfum einnig þróað okkar eigið app til að halda utan um lykilupplýsingar um byggingar, kerfi og íhluti – allt það sem nauðsynlegt er til að skjalfesta prófanir á virkni kerfa. Í því starfi notum við CCI auðkenniskerfið (Component Classification and Identification).
NORCOM framkvæmir einnig innivistarmælingar (IAQ) og byrtumælingar, með hágæða tækjabúnaði í samræmi við strangustu staðla, til að staðfesta að innivist í byggingum uppfylli kröfur flokks I samkvæmt EN 16798.
Við leitum að þér
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á heildarvirkni bygginga og vil til að læra nýjar aðferðir. Þú ert skipulagður, vinnur á kerfisbundinn hátt og hefur reynslu af hönnun kerfa í byggingum. Ef þú vilt taka þátt í að þróa framtíð byggingariðnaðarins með markvissum aðferðum – þá viljum við heyra frá þér.
-
Veita ráðgjöf til hönnunarhópa um notkun auðkenniskerfisins CCI og tryggja rétta virkni og samvirkni tæknikerfa.
-
Veita verkefnastjórum faglega ráðgjöf við gerð framkvæmdaráætlana og prófunaráætlana í samræmi við aðferðarfræði LEAN.
-
Taka virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd prófana á tæknikerfum og tryggja að prófunargögn séu til staðar og í samræmi við samþykktarskilyrði.
-
Taka virkan þátt í undirbúningi magnstillinga á lagnakerfum með áherslu á að tryggja réttan frágang og virkni.
-
Framkvæma innivistarmælingar (IAQ) og byrtumælingar til að sannreyna að byggingar uppfylli kröfur um loftgæði og birtustig samkvæmt IST EN 16798
-
Verkfræðimenntun eða sambærileg tæknimenntun.
-
Reynsla af stjórnun flókinna byggingarverkefna og/eða kerfisbundnum frágangi.
-
Djúpþekking á tæknikerfum bygginga, prófunum og samþykktarskilyrðum.
-
Færni í skjölun, áætlanagerð og notkun BIM/verkefnakerfa.
-
Samskiptahæfni og reynsla af þverfaglegu samstarfi.
- Frábær vinnuaðstæða við Kringluna
- Möguleikar á námskeiðum hérlendis og erlendis.














