Hreyfing
Hreyfing
Hreyfing

Metnaðarfullir einstaklingar í móttöku og spa

Hreyfing leitar að metnaðarfullum, þjónustulunduðum og lífsglöðum einstaklingum í móttöku og spa móttöku.

Í móttöku Hreyfingar starfar öflugur hópur einstaklinga sem kappkostar við að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja að viðskiptavinir upplifi fagmennsku og gleði í hvetjandi umhverfi. Við látum gleðina ráða ferðinni þannig að bæði meðlimir og starfsfólk okkar finni að hér sé gott að vera.

Verkefni móttöku eru fjölþætt - móttaka gesta, gerð veitinga á heilsubar, tímabókanir í spa, veitinga og vörusala, ráðgjöf og úrlausn mála og fleira sem tengist því að hlúa að heilsuvegferð meðlima Hreyfingar. Lykilmarkmið að skapa góða orku, gleði og einstaka upplifun í hvert einasta sinn.

Eiginleikar sem við leitum eftir:

  • Reynsla af þjónustustörfum, t.a.m. úr veitinga- eða verslunarstarfsemi

  • Framúrskarandi samskiptafærni og jákvæðni að leiðarljósi

  • Liðsandi og löngun til að fara fram úr væntingum

  • Ástríða fyrir heilbrigðu líferni og að líða betur í dag en í gær

Tilvalið fyrir metnaðarfulla og félagslynda einstaklinga sem njóta þess að eiga í jákvæðum samskiptum og gera daginn bjartari. Ef það höfðar til þín að taka þátt í því að skapa meira pláss fyrir heilbrigði og jákvæðni hjá meðlimum okkar viljum við gjarnan heyra frá þér.

Utworzono ofertę pracy27. June 2025
Termin nadsyłania podań13. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (1)