Securitas
Securitas
Securitas

Þjónustufulltrúi í vöruhúsi Securitas

Við leitum að liðsauka í okkar frábæra teymi!

Við hjá Securitas leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi til að slást í hópinn okkar í vöruhúsinu við Tunguháls 11. Viðkomandi aðili þarf að vera tilbúinn til að taka þátt í að byggja upp og viðhalda góðu þjónustustigi í vöruhúsi Securitas. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem við kemur móttöku og frágangi á vörum ásamt afgreiðslu pantana og samskiptum við innri og ytri viðskiptavini.

Ef þú...

  • býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að vinna sjálfstætt
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku

...þá erum við að leita af þér!

Í boði er spennandi starf í góðu starfsumhverfi í höfuðstöðvum Securitas við Tunguháls 11. Um er að ræða fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 07:30-15:30 virka daga.

Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Helga Guðrún Lárusdóttir, deildastjóri, í síma 580-7000.

Utworzono ofertę pracy27. June 2025
Termin nadsyłania podań10. July 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Bez kryminalnej przeszłościPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Oznaczenia