

Matreiðslumaður hjá Sýn - tímabundið starf
Sýn leitar að metnaðarfullum matreiðslumanni sem hefur ástríðu fyrir matargerð og vill vinna við framúrskarandi aðstæður. Viðkomandi mun vinna náið með starfsfólki veitingastaðarins BESTA Bistro sem staðsettur er á efstu hæð í höfuðstöðvum Sýnar. Um er að ræða tímabundið starf frá júlí til október 2025.
Á BESTA Bistro er boðið upp á morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu. Mikil áhersla er lögð á að bjóða upp á góðan, hollan og fjölbreyttan mat. Viðkomandi mun aðstoða yfirmatreiðslumeistara í daglegum rekstri, t.d. við framsetningu morgunverðar, undirbúning og eldun hádegisverðar, innkaup og flest önnur tilfallandi verkefni sem tengjast eldhúsinu.
Vinnutími er frá 7.30 - 15.30 alla virka daga.
Ef þú vilt taka þátt í að auka ánægju starfsmanna Sýnar og koma að mótun og þróun á skemmtilegum veitingastað þá bíðum við spennt eftir að heyra frá þér.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Sveinspróf í matreiðslu er kostur
- Ástríða fyrir matargerð
- Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg
- Góðir samskiptahæfileikar og mikil þjónustulund eru áskilin
- Stundvísi og áreiðanleiki
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Umsóknarfrestur er til og með 26.júní nk. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolbrún S. Hjartardóttir, mannauðsráðgjafi, [email protected].
Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar.
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.












