Vodafone
Vodafone
Vodafone

Sölu-og þjónusturáðgjafi í verslun-Fullt starf og hlutastarf

Ertu snjöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslun Vodafone verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Vodafone kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin.

Við erum að leita að hressu og skemmtilegu fólki bæði í fullt starf og hlutastarf í verslun okkar á Suðurlandsbraut.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Ánægja af sölumennsku
  • Snyrtimennska og fáguð framkoma
  • Góð ensku- og tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Metnaður og frumkvæði
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Umsóknarfrestur er til og með 8 júní nk. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir Steindór G. Guðmundsson Waage, verslunarstjóri, [email protected].

Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvefinn okkar

Hver erum við?

Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og dótturfélögin Endor og Já. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Utworzono ofertę pracy30. May 2025
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia