
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Matráður við leikskólann Eyravelli, Neskaupstað
Eyrarvellir er átta deilda leikskóli með sex starfrækar deildir og dvelja þar um 105 börn og starfa um 30 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast alla matagerð í leikskólanum með áherslu á fjölbreyttan og næringaríkan mat.
- Þjálfar og útdeilir verkefnum til aðstoðarmatráðs í samráði við leikskólastjóra.
- Útbýr sérfæði fyrir þá nemendur og starfsmenn sem þess þurfa af heilsufarsástæðum.
- Ber ábyrgð á öllum innkaupum fyrir eldhús og samskipum við birgja.
- Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samræmi við leikskólastjóra.
- Annast daglega ræstingu eldhúss, kaffistofu og í þvottahúsi, hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega.
- Ber ábyrgð á daglegum þrifum og mælingum á hitastigi fyrir HRAUST.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Menntun í matreiðslu er æskileg
- Góð reynsla og atvinnumeðmæli af matreiðslu er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Utworzono ofertę pracy19. June 2025
Termin nadsyłania podań25. June 2025
Znajomość języków

Wymagane
Lokalizacja
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Więcej ofert pracy (8)

Fulltrúi á fjármála- og greiningarsviði
Fjarðabyggð

Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Skólaliði við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Skólastjóri Nesskóla
Fjarðabyggð

Tónlistarkennarar óskast
Fjarðabyggð

Skólaliði við Eskifjarðaskóla
Fjarðabyggð
Podobne oferty pracy (12)

Matreiðslumaður hjá Sýn - tímabundið starf
Sýn

Matráður óskast
Leikskólinn Garðasel

Laus staða matráðs í tímabundið starf
Öxarfjarðarskóli

Kokkur óskast í fullt starf – The Hill Hótel, Flúðum
The Hill Hótel at Flúðir

Viljum ráða kokka og þjóna - We are hiring chefs and waiters
Forréttabarinn

Vantar kokk í hlutastarf
Brand Vín & Grill ehf.

Vaktstjóri/þjónn í veitingasal
Brasserie Kársnes

Óskum eftir fólki í afgreiðslu og þjónastörf í hlutastarf
Íslenska Flatbakan

Pizzabakari
Hjá Höllu

Breakfast Cook and Waitstaff Wanted in Part Time for LÓA
Lóa Restaurant

Aðstoðarmaður í eldhúsi – morgunvinna
Stracta Hótel

Starf í framleiðslueldhúsi
Kjötkompaní ehf.