

Matráður óskast
Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi óskar eftir að ráða matráð sem getur hafið störf í ágúst. Möguleiki er á að starfið sé 80% til 100% staða eftir nánara samkomulagi.
Garðasel er sjö deilda skóli og eru nemendur um 160 talsins á aldrinum 1 til 6 ára. Leikskólinn er í nýju húsnæði þar sem aðstaða í eldhúsi og tækjabúnaður er til fyrirmyndar. Allur matur er eldaður frá grunni og áhersla lögð á hollan og góðan mat sem tekur mið af áherslum samtaka Heilsuleikskóla og Akraneskaupstaðar er varðar næringu og hollustu.
Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að starfsmanni sem hefur áhuga á matargerð, er duglegur og tilbúinn að vinna með öflugum starfsmannahópi af áhuga, jákvæðni og gleði.
Einkunnarorð skólans eru: Lífið er leikur.
Um er að ræða daglegur rekstur á mötuneyti fyrir nemendur og starfsmenn Garðasels og tilfallandi verkefni á tillidögum skólans.
- Matráður sér um matseld, innkaup og skipulag matseðla.
- Matráður sér um mat fyrir börn með fæðuofnæmi eða óþol.
- Matráður ásamt aðstoðarfólki sér um uppvask, þrif í elhúsi, þvottahús leikskólans og kaffistofu starfsmanna.
- Matráður hefur umsjón með störfum aðstoðarfólks í eldhúsi en í eldhúsi skólans eru samtals um 2,5 stöðugildi.
- Matráður er í samstarfi við stjórnendur skólans varðandi hollusthætti og almennan rekstur.
- Matartæknir eða þekking og reynsla af sambærilegu starfi
- Kostur að hafa setið námskeið um meðhöndlun matvæla
- Þekking á næringu og hollustu matvæla
- Þekking á fæðuofnæmi og fæðuóþoli
- Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
- Sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og metnaður í starfi
- Hreinlæti og snyrtimennska er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára og eldri
- Hreint sakavottorð







