

Aðstoðarmatráður í leikskóla
Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í tæplega 80% stöðu, frá kl. 8:00 til 14:00 fjóra daga og einn dag til 16:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 12. ágúst nk. Álfasteinn er 4ra deilda skóli með rými fyrir 90 börn á aldrinum 1 – 6 ára og 30 starfsmenn. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Áhugi á matargerð og heilnæmu fæði er skilyrði. Starfssvið viðkomandi er að sinna verkefnum sem næsti yfirmaður úthlutar samkvæmt skipulagi. Leitað er eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Einingar-Iðju.
Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði og góður starfsandi. Leikskólinn lokar 14:15 á föstudögum og „Betri vinnutími“ er einnig tekinn í uppsöfnuðum dögum milli jóla og nýjárs, í dymbilviku og í haust og vetrarfríi.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á [email protected]. Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri og Sigríður Þorsteinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 460-1760, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected]
- Leysir af matráð.
- Aðstoðar við matseld.
- Sinnir uppvaski og frágangi ásamt aðstoð í eldhúsi.
- Kynnir sér vel þá einstaklinga sem eru með ofnæmi og óþol.
- Fer eftir þrifaáætlun.
- Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um.
- Sinnir þvotti ásamt matráð.
- Sveigjanleiki og frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Kostur að viðkomandi hafi setið „HACCP“ námskeið.
- Fylgir eftir gæðastuðlum og heilsustefnu leikskólans.
Allt starfsfólk Hörgársveitar fær árskort í Jónasarlaug á Þelamörk











