

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara
Mánahvoll er ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Við leggjum áherslu á samvinnu, traust, gleði og sköpun þar sem það endurspeglast í öllu daglegu starfi leikskólans. Dagskipulagið byggir á þörfum barnanna og leiðum til að tryggja vellíðan þeirra. Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun.
- Vinnur með og undir deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Aðra hverja vikur vinnum við 36 stundir og hina 40 stundir. Vikulega eru 2 klukkustundum safnað m.a. upp í frítöku vegna vetrarfría, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og fyrsta vinnudag á nýju ári.
- Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
- 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild. Á Mánahvoli eru 12 börn á hverri deild.
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
- Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leikskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
- Auk þess er Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi












