Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla

Komdu með í skemmtilegt og skapandi starf.

Við leitum að frístundaleiðbeinanda til að starfa í Krakkalandi - frístund við Snælandsskóla fyrir skólaárið 2025-2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-10 ára börn
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins

Ráðningarhlutfall og tími

  • Um 30-40 % hlutastarf er að ræða, vinnutími er eftir hádegi virka daga.
  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla og áhugi á starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
  • Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar gefur Anna Karen Ágústsdóttir, forstöðumaður frístundar með netfangið [email protected] og Brynjar Ólafsson, skólastjóri í síma 860-3526 eða í gegnum netfangið [email protected].

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið er við umsóknum rafrænt á alfred.is .

Fríðindi í starfi

Frítt í sund í Kópavogi

Utworzono ofertę pracy5. September 2025
Termin nadsyłania podań18. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Víðigrund 1, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe