
Advania
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar við að einfalda störf viðskiptavina okkar með snjallri nýtingu á upplýsingatækni. Þó við séum sérfræðingar í tækni viljum við veita framúrskarandi þjónustu. Við hlúum að fólkinu okkar og hjálpumst að við að skapa lifandi vinnustað.
Advania á Íslandi er hluti af Advania-samstæðunni sem er meðal umsvifamestu upplýsingatæknifyrirtækja á Norðurlöndum. Samstæðan er með yfir 50 starfsstöðvar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Bretlandi og Íslandi. Hjá henni starfa yfir 5000 sérfræðingar í upplýsingatækni.

Hugbúnaðarsérfræðingur á sviði rekstrarlausna
Við hjá Advania leitum að öflugum og sjálfstæðum einstaklingi til að þróa og reka lausnir sem tengja saman kerfi, ferla og sjálfvirkni. Hlutverkið hentar einstaklingi sem er sterkur í Go, samþættingum, Kubernetes og rekstrarhugsun, vill vinna nálægt raunverulegum rekstraráskorunum og sjá afrakstur vinnunnar nýtast beint í þjónustu við viðskiptavini og innri teymi.
Þú vinnur í litlu og öflugu teymi þar sem áhersla er á sjálfstæði, tæknileg gæði, einfaldar lausnir og skýra ábyrgð — og þar sem hlutverkið snýst ekki eingöngu um að skrifa kóða, heldur að skilja vandamálið, hanna rétta lausn og byggja kerfi sem þola raunverulegt álag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa og viðhalda bakendaþjónustum í Go
- Hanna og útfæra samþættingar við ytri kerfi, til dæmis rekstrar, samskipta og þróunartól
- Byggja lausnir sem styðja við sjálfvirkni, verkflæði og örugga keyrslu á aðgerðum
- Vinna með PostgreSQL, gagnalíkön, fyrirspurnir og rekstrargögn
- Þróa og afhenda þjónustur í Docker og Kubernetes umhverfi
- Vinna náið með tækni, rekstrar, notendaþjónustu og sjálfvirkniteymum við að koma lausnum í notkun
Hæfniskröfur
- Góð þekking í bakendaþróun, helst í Go
- Góð reynsla af REST API
- Góð reynsla af Docker og Kubernetes í daglegri þróun eða rekstri
- Góð hæfni til að greina og leysa vandamál í dreifðum kerfum
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hæfni til að koma hlutum í framkvæmd
- Góð samskiptahæfni á íslensku og ensku
Kostir en ekki skilyrði
- Reynsla af TypeScript og React
- Reynsla af nútíma frontend tólum, til dæmis Vite og strict TypeScript
- SQL þekking og reynsla af PostgreSQL
Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań8. June 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
DokerGoKubernetes
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (4)
Podobne oferty pracy (12)

Senior Front End Engineer
beqom

Senior Back End Engineer
beqom

Hefur þú gaman af tækni, þjónustu og lausnarleit?
Akraneskaupstaður

Technical Support Engineer
RVX Productions ehf.

Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur í viðskiptagreind, gervigreind og hagnýtingu gagna
Orka náttúrunnar

Hönnuður
Slippurinn Akureyri ehf

Deildarstjóri hugbúnaðarlausna
Skatturinn

Tækjaforritari, Automation Engineer/PLC forritari
Slippurinn Akureyri ehf

Ráðgjafi viðskiptakerfa – á sviði innkaupa, framleiðslu, birgðastýringar og verkbókhalds
Advania

Hópstjóri tölvuþjónustu
TACTICA