Advania
Advania
Advania

Ráðgjafi viðskiptakerfa – á sviði innkaupa, framleiðslu, birgðastýringar og verkbókhalds

Langar þig að vinna í öflugum hópi og með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins

Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullri manneskju í starf ráðgjafa viðskiptakerfa. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum

Starfssvið

Viðkomandi mun taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á Dynamics 365 Finance & Operations.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
  • Greining, hönnun og innleiðing ferla tengdum innkaupum, birgðastýringu, framleiðslu og verkbókhaldi
  • Þátttaka í uppsetningu, prófunum og virkjun lausna hjá nýjum og núverandi viðskiptavinum
  • Samstarf við þróunarteymi, aðra ráðgjafa og hugbúnaðarsérfræðinga
  • Leita leiða til hagræðingar hjá viðskiptavinum með nýtingu á nýrri tækni eins og AI.
  • Þjálfun og fræðsla fyrir notendur

Viðskiptalausnir

Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Ráðgjafinn heyrir undir deildarstjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Dynamics 365 F&O.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
  • Hefur góða þekkingu á innkaupaferlum, birgðastýringu, framleiðsluferlum og verkbókhaldi fyrirtækja
  • Hefur reynslu af þátttöku í innleiðingum viðskiptakerfa
  • Ert fær(t) í skipulagningu og forgangsröðun verkefna
  • Hefur góða samskiptafærni
  • Ert drífandi og árangursmiðuð/aður/að
  • Hefur reynslu af Dynamics 365 F&O eða Dynamics AX
  • Hefur áhuga á að læra nýja hluti og starfa í kviku umhverfi tækninýjunga
  • Hefur skilning á þörfum mismunandi atvinnugreina, viðskiptavina og notenda í tækni
Utworzono ofertę pracy19. May 2026
Termin nadsyłania podań5. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe