Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður
Akraneskaupstaður

Hefur þú gaman af tækni, þjónustu og lausnarleit?

Akraneskaupstaður leitar að tölvuumsjónarmanni sem vill taka þátt í að tryggja öfluga, örugga og notendavæna upplýsingatækniþjónustu fyrir starfsfólk sveitarfélagsins. Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða tæknilega yfirsýn, ríka þjónustulund og ánægju af því að hjálpa öðrum að ná árangri í sínu starfi.

Viðkomandi sinnir almennri notendaþjónustu, rekstri og eftirliti með tölvubúnaði og tekur þátt í að tryggja örugga og skilvirka upplýsingatækniþjónustu fyrir starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn notendaþjónusta og aðstoð vegna tölvubúnaðar, hugbúnaðar og kerfa
  • Uppsetning, viðhald og umsjón með tölvum, prenturum, símum og öðrum tæknibúnaði
  • Umsjón með aðgangsmálum, notendareikningum og grunnstillingum kerfa
  • Eftirlit með virkni búnaðar og þátttaka í úrlausn tæknilegra vandamála
  • Skráning, eftirfylgni og úrvinnsla þjónustubeiðna
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra lausna og umbótum í upplýsingatækni
  • Samskipti við birgja og þjónustuaðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði upplýsingatækni, diplómanám í kerfisstjórnun eða sambærilegt
  • Reynsla í kerfisrekstri, netrekstri útstöðva og mobile-device umsjón
  • Reynsla af notendaþjónustu og almennri bilanagreiningu er kostur
  • Þekking á Microsoft-umhverfi, tölvubúnaði, netkerfum og almennum hugbúnaðarlausnum
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum á skýran hátt
  • Rík þjónustulund, jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að vinna undir álagi og forgangsraða verkefnum
Utworzono ofertę pracy26. May 2026
Termin nadsyłania podań8. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Dalbraut 4, 300 Akranes
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe