
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sumarstarf í Akranesvita og Guðlaugu
Akraneskaupstaður óskar eftir jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í sumarafleysingu í Akranesvita og Guðlaugu á Langasandi. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felst í móttöku gesta, gæslu, þrifum og miðlun upplýsinga.
Unnið er á vöktum, kvöld og helgarvinna í boði.
Guðlaug samanstendur af útsýnispalli, heitri laug og grynnri laug sem nýtur vatna úr yfirfalli efri laugarinnar og er opin alla daga ársins. Útsýni úr lauginni er stórfenglegt, yfir Faxaflóann og til Reykjavíkur.
Akranesviti er vinsæll viðkomustaður ferðamanna og er opinn gestum alla daga yfir sumartímann. Þar er einnig upplýsingamiðstöð. Vitinn er eftirsóttur staður fyrir tónleika, listasýningar og ýmsa menningarviðburði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla á svæði Guðlaugar og Akranesvita
- Móttaka og upplýsingagjöf til gesta
- Almenn afgreiðslustörf
- Bjóða upp á góða upplifun fyrir ferðamenn, skólahópa og aðra gesti
- Taka á móti, leysa úr og/eða koma áfram þeim ábendingum sem berast frá viðskiptavinum
- Þrif, frágangur og umhirða
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þjónustulund, jákvætt viðmót og stundvísi
- Getur unnið sjálfstætt og sýnir frumkvæði og ábyrgð í starfi
- Góða íslensku og ensku kunnátta (önnur tungumál teljast kostur)
- Áhugi á að miðlun upplýsinga og skapa jákvæða upplifun fyrir gesti
- Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
- Aldur 19 ára og eldri
Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Guðlaug við Langasand
Akranesviti 132362, 300 Akranes
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (2)
Podobne oferty pracy (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Volvo og Polestar-Reykjavík
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg

Þjónustufulltrúi - sumarstarf
Icelandia

Sölufulltrúi í valvöru - sumarstarf
BAUHAUS slhf.

Útkeyrsla / lager
Icetransport

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Vaktstjóri á þjónustuborð - helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Avis og Budget

Framtíðarstarf Vefnaðarvörudeild Vogue.
Vogue

Afgreiðsla - Lager Vöruhús
Vatnsvirkinn ehf

Icewear Akureyri - Goðafoss - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Sölufulltrúi Reykjanesbæ - Hlutastarf
Heimilistæki / Tölvulistinn

Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Landspítali