

Sölufulltrúi í valvöru - sumarstarf
Ert þú með góða þjónustulund, dugleg vinnubrögð og hefur gaman af samskiptum við fólk?
Ef svo er, þá gætum við verið að leita af þér!
Nú leitum við af starfsmanni í afleysingar bæði á virkum dögum og um helgar. Starfið hentar vel fyrir aðila sem er í leit af tímabundnu sumarstarfi og hefur gaman af því að vera í samskiptum við viðskiptavini.
Í valvörudeild er að finna baðinnréttingar, blöndunartæki, baðaukahluti, sturtuklefa, heita potta, lagnaefni, flísar og fylgihluti, hurðar, glugga, borðplötur, parket og meira til.
Starfið felur í sér afgreiðslu viðskiptavina ásamt áfyllingum, almennri umhirðu verslunar og önnur tilfallandi verkefni sem lögð eru fyrir.
Um ræðir líflegt starf í hröðu umhverfi þar sem álagspunktar fylgja. Lyftarapróf er skilyrði, eða að viðkomandi sé tilbúinn til þess að taka lyftarapróf fljótlega eftir ráðningu.
- Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Almenn umhirða verslunar
- Önnur tilfallandi verkefni
- Metnaður til að ná árangri
- Jákvætt hugarfar
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Geta til að vinna undir álagi
- Þjónustulund
islandzki










